Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Um okkur

Hanna Steinunn Steingrímsdóttir
Eyjólfur Daníel Jóhannsson
Drammen
Norge
HSS: (+47) 47 90 72 08
EDJ: (+47) 47 90 69 72

Veðrið í Drammen

Nokkur skíðasvæði í Noregi

Myndasíðan okkar

Innskráningar kubbur

Nýjar fréttir

27. nóvember 2008 klukkan 09:21
Hæ hæ :)

Vá hvað maður er öflugur bloggari... eða þannig Laughing

Byrja á nýjustu fréttunum, til hamingju með guttann Svanhildur og Gummi !!!  jebb, the dude is in the house, ég hlakka svakalega til að sjá hann !!


Svo langar mig að benda á smá breyting hér á síðunni... nú er komið lítið myndaalbúm undir "myndir" hérna efst til vinstri Smile kannski verð ég eitthvað duglegri að setja inn myndir núna hehehe :)



En allavega, fréttir af okkur.  Jú, eins og glöggir lesendur síðunnar ættu að vera komnir með erum við hjónin flutt til Drammen.  Það fer afskaplega vel um okkur hérna!!  Síðan við fluttum hafa bílarnir okkar nánast staðið kyrrir í innkeyrslunni (allavega förum við nánast aldrei á bensínstöð lengur).  Eyjólfur hjólar í vinnuna á hverjum degi (veit samt ekki hvort hann geri það svona yfir háveturinn vegna færðar) og núna tekur ekki nema 50 minútur fyrir mig að fara í skólann (aðra leiðina... fer reyndar eftir umferð) og aðeins 30-40 min inn til Oslóar, algjör draumur!!

Við fórum úr 50 fermetra íbúð í 80 fermetra og vorum fyrst um sinn bara með áhyggjur af því að við fengjum víðáttubrjálæði og bergmálið myndi fara með okkur, en við vorum fljót að fylla upp í rýmið!  Fengum eitt og annað lánað, og svo síðast í gærkvöldi bættist við þetta forláta, fagurklósettgræna Gustavian borðstofuborð ásamt sex jafn fagur klósettgrænum stólum Tongue out  (ég setti mynd af því í myndaalbúmið)....  við hjónin erum búin að klóra okkur í kollinum yfir þessu borðstofuborði, erum ekki alveg viss um hvað við eigum að halda... við erum alveg búin að sjá að þessi fagurgræni litur er ekki alveg það sem við sáum fyrir okkur í borðstofukrókinn og Gustavian er kannski ekki alveg okkar stíll, svo pælingin er... eigum við að mála það hvítt... eða saga það niður og henda því í kamínuna :)

Þar að auki áskotanðist okkur þetta fína eldhúsborð, en Eyjó ætlar að sjá hvort hann geti ekki lappað eitthvað aðeins upp á það, þá lítur það kannski svona ágætlega út Wink 


Svo er jólahlaðborðið núna á laugardaginn... verður eflaust rokna stuð, mikið fyllerí og mikið gaman!!  Þó svo ég sé nú byrjuð í próflestri og verði að halda aftur af mér, að minnsta kosti að einhverju leyti Laughing

Já, vá... það er það próflestur í gangi (og að sjálfsögðu bloggar maður þá)... er byrjuð að rembast við að massa námsefnið en VÁ HVAÐ ÞETTA ER MIKIÐ..... Yell  en maður gerir að sjálfsögðu bara sitt besta!!!

Jæja, best að halda áfram að lesa,
bið að heilsa öllum nær og fjær

Bestu kveðjur,
Hanna Steinunn

Hanna Steinunn Steingrímsdóttir
Eva Ósk
 
Hae!
Til hamingju med nyju íbúdina, lítur mjög vel út :)
Ég myndi mála bordstofusettid hvítt og skipta um áklaedi á stólunum og thá held ég ad thetta yrdi mjög flott! :)

Gangi thér vel í prófalestrinum!

Kv. Eva Ósk.
27. nóvember 2008 klukkan 09:43
Hæhæ
Roslega fín nýa íbúðin ykkar!
Mér finnst græna borðið og stólarnir bara stórfínir. Ætla bara að láta þig vita áður en þú ferð út í framkvæmdir að það er sko ekkert grín að gera upp gamla stóla og borð. Skemmdir og þess háttar verður mun meira áberandi o.s.frv. Ég myndi bara halda þessu eins og þetta er. En það er nú kannski ekki að marka mig:)
Gangi þér ofsa vel i lestrinum. Sjáumst eftir nokkrar vikur:)
27. nóvember 2008 klukkan 10:27
Svanhildur
 
Hæ Ég er búin að senda þér tölvupóst - ég missti af símanum þegar þú varst að hringja og ég á ekki inneign á símanum og það sem er enn sorglegra er að ég á ekki pening heldur til að kaupa inneign á hann hehe :O) En vonandi heyri ég frá þér fljótlega :Þ
27. nóvember 2008 klukkan 21:07
Svanhildur
 
p.s mér finnst íbúðin æðislega fín og kósý - jummý væri til í svona kamínu :) En ég verð að segja að mér finnst eldhúsborðið og stólarnir bara mjög falleg húsgögn - er alls ekki viss um að þetta yrði fallegra hvítt - myndi hafa þetta svona því þetta er bara fínt....en ef þið fílið þetta ekki þá er alveg þess virði að prófa að mála þetta frekar en að henda þessu í eldiviðinn - sérstaklega ef þið eigið hvort eð er ársbyrgðir :) Adios
27. nóvember 2008 klukkan 21:11
Mamma
 
Elsku hjartað mitt.
Mér finnst þetta nú bara fínt borðstofusett. Það er spurning hvort hægt er að taka þennan lit af og hafa settir í viðarlit. Annars mundi ég ekki gera neitt við þetta að svo stöddu. Þið gætuð sett á borðið dúk til að fela þetta græna. En hvaða máli skiptir það í bili. Þið finni ðörugglega út úr þessu. Hvar fenguð þið þetta borð? Eigið þið þetta?
Bestu kveðjur, Mamma.
28. nóvember 2008 klukkan 22:51
Til hamingju með nýju íbúðina, hún er rosa fín. skil ekkert í þér að vera að kvarta yfir nýja borðstofubúnaðinum ykkar, hann er svo fínn.

Sjáumst í jólapartyinu í desember.

Kveðja frá Karlsruhe.
30. nóvember 2008 klukkan 12:48
Maja
 
jejjj gaman að lesa nýtt blogg

til hamingju með nýju íbúðina :)

ég er sammála flestum af fyrri ræðumönnum, þið skuluð bíða með að eiga eitthvað við borðstofuhúsgögnin - þetta er svosem ekkert æðislegur litur, en þið hjónin eruð svo dugleg á saumavélinni að það er spurning hvort þið saumið ekki bara eitthvað áklæði yfir stóla og notið dúk á borðið.

kv.
Maja
30. nóvember 2008 klukkan 13:41
hæ pæ...vá hvað nýja pleisið lýtur vel út og snilld að vera komin aðeins nær menningunni:) ég er alveg sammála fyrri ræðumönnum með dúk og sessur á borðstofuhúsgögnin...held að þetta geti orðið svaka retró og fansý með svörtum dúk og svörtum sessum :) En ef þið ætlið í framkvæmdir á húsbúnaðinum..þá er til einhver svona lakkleysir sem ég sá í innlit/útlit sem er borin á og svo strokið yfir með tusku svo þá þarf ekki að pússa allt til hell.

Gangi þér vel í próflestrinum skvísa. :)

hlakka til að sjá þig um jólin :)
02. desember 2008 klukkan 13:39
Hanna Steinunn
 
Hæ allir saman

Þakka fyrir allar kveðjurnar og ábendingarnar !! Ég hugsa að við munum ekki gera neitt að svo stöddu við borðstofusettið (vegna próflestra hjá mér og svona)... en góðar ábendingar sem er gott að hafa með sér :D

Við fengum þetta gefins frá vini vinar svo við erum víst eigendurnir að þessu forláta borðstofusetti híhí :)
05. desember 2008 klukkan 10:51

Skrifa athugasemd