Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Um okkur

Hanna Steinunn Steingrímsdóttir
Eyjólfur Daníel Jóhannsson
Drammen
Norge
HSS: (+47) 47 90 72 08
EDJ: (+47) 47 90 69 72

Veđriđ í Drammen

Nokkur skíđasvćđi í Noregi

Myndasíđan okkar

Innskráningar kubbur

hei :)

09. desember 2008 klukkan 09:51

Eftir 6 daga fer ég í fyrsta prófið
Eftir 8 daga er á hálfnuð
Eftir 10 daga fer ég í síðasta prófið, fer í partýgleði með bekkjarfélögum eftir prófið og jólapartý vinnukrakkanna um kvöldið
Eftir 11 daga fer ég kannski í bíltúr til Gautaborgar með Eyjólfi í jólastemmningu þar
Eftir 12 daga kem ég heim til ástækar Íslands :)

Jebb, ég er semsagt í próflestri.  Það er þegar maður er í próflestri sem maður fer að telja daga eitthvað óeðlilega mikið, heimilisstörfin segja líka mikið til sín ásamt mikilli internet þörf... sumir myndu segja að þetta héti að sluksa, en ég neita því :)  Ég var reyndar að vinna um helgina sem var kærkomin tilbreyting frá bókunum !!!  ég tók eftir því þegar ég mætti á föstudaginn hvað það var gott að fá smá tilbreytingu í lífið :)

Svo eru alveg að koma jól.... :) :)
Norðmenn missa sig nú ekki jafn mikið í jólaskrauti og jólagleði eins og íslendingar.  Ég er bara búin að heyra eitt jólalag í útvarpinu það sem af er þessum mánuði, og norðmenn skreyta sko engan veginn jafn mikið og íslendingar gera !!!!!   það er alveg á tæru!!  þannig að ég er eiginlega ekki komin í neitt jólaskap þannig lagað séð.....  ég nenni heldur ekki að skreyta hérna heima hjá mér, að öðru leyti en henda upp aðventuljósinu í gluggann og aðventukransinn á stofuborðið þar sem ég nýt jólaskrautsins afskaplega lítið þegar ég er hvort eð er á Íslandi yfir hátíðarnar :)

Kuldinn er aðeins farinn að láta finna fyrir sér núna.  Var 12 stiga frost í fyrradag og einhverjar -7 gráður í dag... sem betur fer er svotil alltaf logn hérna svo maður frýs ekki alveg við það eitt að opna útidyrnar.  Það er svona um það bil 20 sm snjólag yfir öllu svo þetta er allt orðið svaka kósý, nú vantar bara jólaljósin og jólalögin eins og íslendingarnir gera þetta :)

Annars er allt við það sama hér, engar sérstakar krassandi slúðurfréttir heldur gengur lífið sinn vanagang.... 

Jæja, best að halda áfram að lesa... þetta er að verða búið :)

Bestu kveðjur
Hanna Steinunn

 

Hanna Steinunn Steingrímsdóttir
Maja
 
Gangi þér vel í próflestrinum

núna eru bara 8 dagar þangað til þú kemur til Íslands :)
13. desember 2008 klukkan 13:13
Hanna Steinunn
 
Svona af því ég er í prófalestri hehehe:

Eftir 2 daga fer ég í fyrsta prófið
Eftir 4 daga er á hálfnuð
Eftir 6 daga fer ég í síðasta prófið, fer í partýgleði með bekkjarfélögum eftir prófið og jólapartý vinnukrakkanna um kvöldið
Eftir 7 daga fer ég kannski í bíltúr til Gautaborgar með Eyjólfi í jólastemmningu þar
Eftir 8 daga kem ég heim til ástækar Íslands :)
13. desember 2008 klukkan 18:41

Skrifa athugasemd