Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Um okkur

Hanna Steinunn Steingrímsdóttir
Eyjólfur Daníel Jóhannsson
Drammen
Norge
HSS: (+47) 47 90 72 08
EDJ: (+47) 47 90 69 72

Veđriđ í Drammen

Nokkur skíđasvćđi í Noregi

Myndasíđan okkar

Innskráningar kubbur

24. janúar 2009 klukkan 13:50
Góðan daginn !!

Nú er ég komin til Noregs á ný (reyndar tæp vika síðan) en þrátt fyrir mikla heimþrá í fyrstu er þetta bara að verða ágætt Laughing  Hér bókstaflega kyngir niður snjó og við Eyjó förum og mokum reglulega snjó frá bílskúrnum og göngustígnum að húsinu á milli þess sem Anna (nágrannakona okkar) mokar!!!  T.d. er hún Anna búin að taka eina og hálfa umferð í dag (við tókum hálfa) og klukkan rétt að detta í 15:00 !!! 



Annars er ég búin að skrá mig á dágóðan slatta af vöktum fram að fyrstu skólatörn og finnst það eiginlega bara ágætt!!  Það er búið að vera mökk erfitt að koma sér í gang eftir svona langt jólafrí... en þetta er allt að koma Cool

En þar sem ég ætlaði bara að hafa þetta svona stutta og krúttlega færslu hér í fyrstu lýkur þessari bloggfærslu hér með.

Bestu kveðjur til allra og takk fyrir allt og allt síðastliðinn mánuð :)

Kær kveðja
Hanna Steinunn 
Hanna Steinunn Steingrímsdóttir
Sömuleiðis sæta...gaman að sjá þitt sæta fés.
24. janúar 2009 klukkan 16:07
Jóhanna Ingimarsdóttir
 
Elsku hjartað mitt.
Það er nú ekki lítið sem ég saknaði þín þegar þú fórst. Var eiginlega alveg ófær um að lesa því ég nennti því ekki. Nú verð ég hins vegar að fara að standa mig.
Bestu kveðjur, Mamma
24. janúar 2009 klukkan 21:14
Brynja
 
what...er svona rosalega mikill snjór þarna hjá þér...búið að moka 3x fyrir kaffi!!! úff svo verður maður smá pirripú hér á klakanum þegar þarf að skafa bílinn stöku sinnum..roðn.

knús Brynjan:)
28. janúar 2009 klukkan 20:26

Skrifa athugasemd