Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Um okkur

Hanna Steinunn Steingrímsdóttir
Eyjólfur Daníel Jóhannsson
Drammen
Norge
HSS: (+47) 47 90 72 08
EDJ: (+47) 47 90 69 72

Veðrið í Drammen

Nokkur skíðasvæði í Noregi

Myndasíðan okkar

Innskráningar kubbur

ævintýri í osló

28. janúar 2009 klukkan 16:35

Nú styttist óðum í að byrji aftur í skólanum... og nú er eins gott að koma sér það að lesa blessuðu bækurnar !!
Í tilefni þess að ég er búin að vera svo dugleg að vinna (og sofa hehe), ákvað ég að skjótast til Oslóar í dag og hitta hana Lauru sem var með mér í tímum þar.  Það fer svo sem ekki miklum sögum af þeim hittingi enda bara típískt stelpuspjall um allt og ekkert.  Eftir að við höfðum rabbað í dágóða stund, settist ég niður í einn lessalinn og lærði smá, eða þar til Gunn kom og náði í mig fyrir túristadag Gunn og Hönnu Steinunnar í Osló :)   Við byrjuðum á því að smella okkur í norsku óperuna (þ.e.a.s. skoðuðum húsið) því það er það heitasta hjá ferðamönnum í dag.  Við ákváðum að í sumar myndum við taka stelpukvöld í fínum kjólum og henda okkur á óperusýningu...)...

þvínæst smelltum stefndum við á kókosbolluverksmiðju, sem var reyndar flutt á annan stað.. en sem betur fer var kókosbollu-verslun (heil sjoppa sem sérhæfir sig í kókosbollum!!).  Ég sá á matseðlinum að það var hægt að kaupa svona pakka af kókosbollum, einhver 36 stykki eða eitthvað álíka og hugsaði "ætli það sé einhver sem kaupi svo mikið í einu" en svo kom í ljós að daman sem var á eftir okkur í röðinni fjárfesti í slíkum gæða-pakka :)  Sjálf búllan var nú ekki lítið kósý, stólarnir allir í alls kyns litum og minntu helst á sviðsmynd í Grease :)  því miður gleymdi ég myndavélinni, en ef ég fer aftur, þá tek ég sko heldur betur myndir !!!

Eftir þessa dásemdar kókosbolllu-máltíð smelltum við okkur að "syngjandi rúllustiganum."  Jebb, það er semsagt á einum stað í Osló syngjandi rúllustigi!!  Veggirnir utan um rúllustigann eru úr plexigleir eins og sjá má á myndinn og breyta um liti í takt við einhverja tónlist !!!  það sem fólki dettur í hug :)

 

Eftir að hafa upplifað hinn syngjandi rúllustiga skelltum við okkur ásamt Katja og Katrine á ódýran Indverskan veitingastað við Majorstuen.  Eftir alveg hreint prýðileg máltíð smelltum við okkur svo á spurningakeppni sem er haldin hvern einasta þriðjudag.  Ég verð að viðurkenna að ég sökka í svona spurningakeppnum, sérstaklega þar sem spurningarnar eru rosalega "norsku" miðaðar, t.d. norsk tónlist, um skíðasambandið í noregi, skíðaíþróttir og norskar bíómyndir....  !!!!  þar fyrir utan þá skildi ég ekki einu sinni stöku spurningu :D  Ég yfirgaf svo svæðið áður en úrslitin voru tilkynnt þar sem ég var á því að ég ætti að mæta klukkan 7 í morgun í vinnuna (sem var svo rangt, eitthvað skolast til í skipulaginu mínu), en liðið okkar lenti í fimmta sæti (af svona 12 liðum) svo það var ekki slæmur árangur! :)

Næstu dagar verða heldur tilbreytingasnauðir, þ.e.a.s. lesa og lesa og vinna smá... 

Eyjó fer í ísakstur um helgina í Dagali og það verður líkast til rosa gaman, og á meðan fæ ég svaka mikið næði til að lesa (eða vera á facebook, eða mbl eða eitthvað haha).  ég geri ráð fyrir að eyjó bloggi um ferðina á sinni síðu eftir helgina :)

Þar til næst,
Kveðja
Hanna Steinunn

 

 

Hanna Steinunn Steingrímsdóttir
Jóhanna Ingimarsdóttir
 
Elsku HSS.
Mikið er gott að þú ratar núna að óperunni. Þá getum við e.t.v. skoðað dásemdina án þess að aka alla þessa hringi sem við ókum síðast:-)
Varstu búin að hringja þangað eða í national eða det norske o.sfrv.
Hlakka til að fara í tónlistaarstigana.
Bestu kveðjur, Mamma.
28. janúar 2009 klukkan 17:02
Brynja
 
snilld hjá ykkur að taka einn túhest á þetta :) þú verður aldeilis orðin sjóuð í túristaferðum þegar pinkmafian mætir á svæðið:) ohh alltaf með það i maganum hvað það væri gaman að koma allar út til þín, Evu eða Sirrýjar !!!
luv Brynjan:)
28. janúar 2009 klukkan 20:35
Hanna Steinunn
 
nei, ég var ekki búin að tékka á þessu... þarf að drífa í því !!

Já, það væri ekkert smá gaman ef þið kæmust !!!! Ég er allavega alveg tilbúin að taka á móti hópnum !!
28. janúar 2009 klukkan 20:51
KOKOSBOLLUVERKSMIDJA !!! Hvernig for eg ad missa af henni! HVAR ? Eg tangad !
02. febrúar 2009 klukkan 17:00
Hanna Steinunn
 
Hmm... hún er á Grønland... en ég veit ekki nákvæmt heimilisfang :( þarf eiginlega að reyna að grafa það upp, hún var á Sagene, en þar er bara þessi litla búð núna, kemurðu bara ekki með mér í missionið "finna-kókosbollu-verksmiðjuna" :)
03. febrúar 2009 klukkan 09:17
Brynja
 
kvitti kvitt :)
03. febrúar 2009 klukkan 23:27
silja
 
Let's go :)
05. febrúar 2009 klukkan 14:37
Maja
 
hlakka mikið til að mæta til þín í sumar í "sægtsííng"

kókosbolluverksmiðjan hljómar vel - það er nú alveg hægt að klára 36 bollur ef nokkrir taka sig saman
væri líka alveg til í rúllustigaferðina :)
07. febrúar 2009 klukkan 14:37
Hanna Steinunn
 
Já ekki spurning, þá verðum við Silja búnar að finna sjálfa verksmiðjuna :D
09. febrúar 2009 klukkan 19:05
Brynja
 
hæ elsku afmælisskvís:) vonandi áttir þú yndislegan dag :)
15. febrúar 2009 klukkan 19:07
Jóhanna Ingimarsdóttir
 
Elsku Hanna Steinunn.
Það hefur lítið gerst á þessari síðu undanfarið. Gerist ekkert hjá ykkur eða er þér bara svona kalt???
Betu kveðjur, Mamma.
25. febrúar 2009 klukkan 13:48

Skrifa athugasemd