engin fyrirsögn
Vá, ég held að ég sé gersamlega búin að setja met í blogg leti hehe 
Það er nú kannski bara út af því að það er ósköp lítið að frétta, það er bara nóg að gera í skólanum og ég eyði alveg hrikalega miklum tíma fyrir framan bækurnar!! En þar sem mér finnst námið þrælskemmtilegt þá er það í góðu lagi !!
Ég er alltaf með hugann við að skipta um vinnu, fór þar af leiðandi í eitt atvinnuviðtal á þriðjudaginn var og svo í annað atvinnuviðtal á þriðjudaginn kemur svo það verður bara spennandi að sjá hvað kemur út úr þeim! Ég segi betur frá þessu öllu þegar ég veit eitthvað meira :D
Ég hef ekkert farið á skíði þennan veturinn !!! Eins og við vorum hrikalega dugleg í fyrra!! þetta er nánast skammarlegt, og það hefur heldur betur verið nóg af snjó hérna! En einhverra hluta vegna hefur tíminn bara farið í eitthvað annað...
síðustu helgi fórum við Eyjó, Maggi, Jóhann, Hilmar Freyr og Halldóra Líf á bílasýningu í Lillestrøm (fyrir bílaáhugafólk sjá hér http://www.gatebil.no/index.php?id=2486&pageid=116&page=1 ) sýningin var ágæt.. verð þó að segja að mér fannst sýningin í fyrra áhugaverðari. Þarna var bókstaflega heilt fjall af allskonar bílum og mótorhjólum og dóti svo það var ekki leiðinlegt. Þarna voru líka sýndir bílar sem hafa verið smíðaðir fyrir norska herinn og viti menn.... Eyjó hafði smíðað einn sjúkrabílinn þarna (ásamt fleiri starfsmönnum AT að sjálfsögðu
)... gaman að því !!
Haldiði svo að daman hafi ekki bara skellt sér í flatkökubakstur um daginn !!! Eftir þorrablótið þá langaði mig alveg rosalega mikið í flatkökur, svo ég fletti upp í Helgubók (matreiðslu-biblíunni minni) og fann uppskrift af flatkökum... hin upprunalega uppskrift er heldur betur auðveld, hálft kíló af rúgmjöli og einn fjórði lítri heitt vatn!!!! já ég veit, fáránlega einfalt !!! Ég skellti mér nú í flóknari gerðina sem samanstóð af hveiti, heilhveiti, rúgmjöli, salti, lyftiduft og mjólk !! þessi flókna var semsagt líka einföld !! Svo hnoðaði ég saman degið, bjó svo til litlar kökur smellti mér í lopapeysuna stökk út og bakaði herlegheitin á gasgrillinu
geggjað gaman hjá mér, og viti menn, þær voru sko bara þrælfínar!!!
Annars finnst mér tíminn líða alveg óheyrilega hratt hérna, nú þarf ég að fara að finna mér verkefni fyrir mastersritgerðina mína og ég snýst bókstaflega í hringi, skipti allt of oft um skoðun og veit ekkert hvað ég á að taka mér fyrir hendur þar sem það eru mörg spennandi verkefni í boði !!! Í draumaplaninu mínu þá væri ég sko alveg til í að byrja á verkefninu í sumar og eiga þar af leiðandi nógan tíma eftir jól á næst ári til að dúllast í þessu, en það er nú bara svona draumaplanið híhí
Þar til næst,
Hanna Steinunn
Það er náttúrlega ekki nóg að hafa bækurnar fyrir framan sig, það þarf að lesa þær;-)
Mér finnst flott hjá þér að hafa svona mikið að gera því þá er gott að vera þarna. Vil samt ekki að það verði of gott að vera þarna því ég vil fá þig heim eftir að þú hefur lokið náminu.
Af hverju hafið þið ekki farið á skíði? Það hlýtur nú að hafa gefist tími til þess í allan vetur.
Bestu kveðjur, Mamma.