Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Um okkur

Hanna Steinunn Steingrímsdóttir
Eyjólfur Daníel Jóhannsson
Drammen
Norge
HSS: (+47) 47 90 72 08
EDJ: (+47) 47 90 69 72

Veðrið í Drammen

Nokkur skíðasvæði í Noregi

Myndasíðan okkar

Innskráningar kubbur

MAÍ

03. maí 2009 klukkan 14:26

vá hvað tíminn líður hratt!!  MAÍ... bara rúmur mánuður eftir af þessari önn... úff úff

Það hefur verið frekar mikið að gera síðastliðinn mánuð sem skýrir ástæðu þess að flatkökubaksturinn hékk svona lengi sem síðasta blogg! (sem var frá 14 mars....)

En svona í stuttu máli...  síðan í mars er ég náttúrlega búin að afkasta heilum helling í skólanum (sem er svo sem ekkert sérstaklega frásögu færandi)... 

pabbi átti afmæli 13 apríl en hann varð 60 ára þetta árið!!!   og ég skellti mér í afmælið hans Cool það var þrælskemmtilegt og rosalega gott að vera aðeins í faðmi fjölskyldunnar og hitta vinkonurnar!  Verst hvað ég hafði ótrúlega lítinn tíma, náði þar af leiðandi ekki að hitta Astrogengið né háskólapíurnar!!

Önnur afmælisbörn aprílmánaðar sem fá hamingjuóskir frá mér eru Brynja, Eva Ósk, Hildur, Óli Páll og að sjálfsögðu eiginmaður minn hann Eyjólfur sem varð hvorki meira né minna en 30 ára!  Eyjólfur hélt upp á afmælið með því að bjóða gengi úr vinnunni í mat og eldaði hvorki meira né minna en Wellington nautasteik handa 17 manns og bakaðar kartöflur, salat og sósu með!!!   Geri aðrir betur!!!

Eftir afmælið tók við meiri skóli hér í Noregi... EN... svo fórum við íslendingarnir á NAFO ráðstefnu á Storefjell.  Þetta var semsagt samansafn af áhugamönnum um atferlisgreiningu sem hittust og sátu á fyrirlestrum hjá hvorum öðrum, djömmuðu saman, borðuðu (mikið) af góðum mat og djömmuðu meira (frá fimmtudegi fram til sunnudags)... hvorki meira né minna en 900 manns sem mættu (mig minnar að það séu um 30 skráðir félagar í SATÍS (áhugamenn um atferlisgreiningu á Íslandi)!!  Þetta var alveg þrælskemmtilegt!!

Svo er náttúrulega ABAI ráðstefna í Osló í ágúst sem ég ætla að fara á... en það eru seinni tíma fréttir hehe


Eftir NAFO fór ég á prufuvakt í nýrri vinnu...  hver vakt er tveir og hálfur sólarhringur svo þetta var alveg ótrúlega frábrugðið öllu vaktaskipulagi sem ég hef prófað!  í staðin eru bara 4 vaktir í mánuði fyrir 100% vinnu Smile  Vinnan var ágæt... þetta er ekkert staðurinn þar sem ég mun sigra heiminn, en ágætis stoppistöð svona með náminu!  Þetta er semsagt heimili fyrir þrjá einstaklinga sem eru einhverfir...

Svo er bara meiri skóli!  í síðustu viku komu tveir hundar í skólann hjá okkur og við fengum að spreyta okkur á svona "clicker training."  Það var þrælskemmtilegt!  Aldrei að vita nem ég hendi inn einhverjum myndum af því við tækifæri.... Í næstu viku erum við svo að fara að skoða "rottu-lab"....  ég ætla sko að taka myndavélina mín með og taka myndir af því líka... set kannski allar myndirnar inn á sama tíma hehe

Svo var ég að vinna á sjúkrahúsinu þessa helgi... það hefur því heldur betur ekki verið tækifæri til að láta sér neitt leiðast hér á bæ!!


Jæja, ætla ekki að hafa þetta neitt of langt... enda nennir enginn að lesa langa pistla hehe

Bestu kveðjur til ykkar allra
Hanna Steinunn

Hanna Steinunn Steingrímsdóttir
Jóhanna Ingimarsdóttir
 
Elsku Hanna Steinunn mín.

Ofboðslega er gaman að fá upplýsingar um vegferð ykkar.
Þú þarft að útskýra Welingtonsteik því ég hef það ekki á hreinu þótt ég hafi nautakjöt dálítið á hreinu.

Sósurnar hans Eyjólfs eru líka góðar og stöðugar framfarir þar. Það er spurning hvenær ég þarf að mæta á námskeið hjá honum í þessum eftirlætisrétti okkar.

Hafið það sem allra best.

Bestu kveðjur, Mamma.
03. maí 2009 klukkan 17:18
Maja
 
má maður eiga von á wellingtonsteik í sumar ?????
10. maí 2009 klukkan 13:22
Svanhildur
 
Er mín orðin löt að blogga? :O)
24. maí 2009 klukkan 08:48
Maja
 
held hú sé bara voða upptekin í lærdómnum - hlakka samt til að fá nýja færslu ;)
27. maí 2009 klukkan 17:18
Svanhildur
 
Við verðum að taka skype sem fyrst svo þú fáir fréttir af laugardagskvöldinu :O)
01. júní 2009 klukkan 23:14
Svanhildur
 
Ég vona að það hafi gengið vel í prófinu í dag mín kæra :) Nú er það bara 2 dagar í viðbót ;)
08. júní 2009 klukkan 21:27
Jóhanna Ingimarsdóttir
 
Elsku Hanna Steinunn mín.
Já, það er þetta með svörin við hinum og þessum spurningum:-) Það skiptir ekki máli hvort maður spyr á blogginu þínu eða í almennum skeytaseningum, það fæst ekkert svar - nema um sumt;-(
Hafðu það samt sem best og farið að undirbúa Wellington handa okkur Maríu.
Ég hlakka líka til allra annarra steika hjjá ykkur og sósa og bara allt sem EDJ hefur verið að æfa sig í auka flatkakanna þinna.
Við förum í búðina þegar ég kem út:-D
13. júní 2009 klukkan 14:47
Svanhildur
 
Jæja............:)
30. júlí 2009 klukkan 21:45
Brynja
 
hæ skvísípís:)
bloggidíbloggidíblogg:) blikk blikk :)
21. ágúst 2009 klukkan 20:53
svansílína hansen
 
hæ hvernig væri að henda inn nokkrum línum og jafnvel fleiri myndum???? er ekki alveg sáttt við þetta myndaleysi sko :O)
15. september 2009 klukkan 17:32
Brynja
 
já sammála Svansílínu hansen...væri svaka gaman að sjá myndir af fallega fólkinu :)

knús Brynjan:)
18. september 2009 klukkan 09:16
Maja
 
Þér fannst langt á milli blogga frá 14. mars til 3. maí
hvað kallast þá tíminn sem liðinn er frá síðasta bloggi og til dagsins í dag ??
10. nóvember 2009 klukkan 10:09
Svanhildur Ana
 
Heyr heyr...ég tek því þannig að Facebook sé búið að ná yfirráðum :)
13. nóvember 2009 klukkan 12:07
Bara allt að gerast í noregi ;)

sendi á ykkur kveðju og kossa

Ágústa (og co)
03. desember 2009 klukkan 21:33

Skrifa athugasemd