Góðan dag kæru lesendur J
Ég er í rosalega basli með internetið hérna hjá okkur, næ ekki borðtölvunni í gang og þráðlausa netið í fartölvunni dettur reglulega út mér til mikillar armæðu ! Ég er að vonast til að koma hinni internettenginunni í gang fljótlega. Hér í landi ganga hlutirnir ögn hægar en heima svo ég verð að sýna þolinmæðiJ Myndirnar okkar koma heldur ekki á netið strax vegna þessara netvandræða en ég set slóð á myndasíðuna hér til hliðar við tækifæri svo það sé hægt að stökkva inn á hana.
Við erum búin að vera big spenders síðustu daga. Við höfum keypt nánast allt sem hefur vantað í íbúðina. Ísskápurinn og þvottavélin sem við pöntuðum koma reyndar ekki fyrr en á morgun. Við verðum að kaupa okkur nýtt rúm því 1.40 er klárlega ekki nógu breitt fyrir okkur, við erum í því að vekja hvort annað alla nóttina L
Fyrir utan allt verslunaræðið sem við höfum verið í (og hefur tekið laaaaaaaangan tíma) þá áttum við alveg geggjað skemmtilegan dag í gær. Við fórum á akstursæfingabrautina hjá Sverre !!!!!! og vitið þið hvað..... ég fékk líka að keyra!! Kræst hvað þetta var gaman! Við vöknuðum klukkan 5 (3 á íslenskum tíma) í gær og hittum Sverre fyrir utan Artic Trucks klukkan 6. Við keyrðum svo í rúma 2 klukkutíma til að ná í einn akstursbíl og hálftíma í viðbót til að komast að sjálfri brautinni (enginn smá skaðræðis akstur en hér í landi þykir þetta ekkert tiltökumál). Brautin er í dag tæpir 2 km en það eru fyrirhugaðar breytingar á henni á næstunni svo hún verður rúmir 4 km þegar þær eru búnar, það er hægt að sjá brautina hér http://www.rudskogen.no
Sverre mætti á svæðið með 6 æfingabíla. Hann sendi okkur Eyjó til að galla okkur upp, og fá hjálma og hanska. Sverre var með hóp af fólki sem hann var að þjálfa. Fyrst var hann með fyrirlestur fyrir þetta fólk um akstur á vegum (á norsku) sem við Eyjó skildum svona inn á milliJ.... svo var farið út á brautina og við fengum leyfi til að stökkva inn í bíl inn á milli.. Eyjó keyrði reyndar mun meira en ég (enda var það bara bónus að ég fengi að kom með) en svo kom að því að ég fékk að keyra...... Eyjó kom með mér í bílinn þar sem ég hef náttúrlega ALDREI farið yfir leyfilegan hámarkshraða á ævinni !!! En viti menn, þegar ég var í mínum 6 hring eða eitthvað þá tók Eyjó tímann á mér og mín keyrði brautina á 1.21 min. Eyjó keyrði brautina á 1.14 sem sami tími og Ole tók (kennari og keppnismaður) og NB Ole var á kraftmeiri bíl hehehehe. Þetta var alveg geðveikt gaman!!! Á langa beina kaflanum fór ég upp í 150 ef ekki meira !!!! Sverre var svo ánægður með mig að hann ætlar að setja mig á kraftmeiri bíl næst J J
En nú ætlum við Eyjó að skella okkur í enn einn verslunarleiðangurinn og ég ætla að athuga með vinnu á geðdeildinni á Lier sjúkrahúsinu. Krossleggið fingur fyrir mig og vonið að ég fái vinnuJ
Bestu kveðjur
Hanna Steinunn
10 athugasemdir