MAÍ
vá hvað tíminn líður hratt!! MAÍ... bara rúmur mánuður eftir af þessari önn... úff úff
Það hefur verið frekar mikið að gera síðastliðinn mánuð sem skýrir ástæðu þess að flatkökubaksturinn hékk svona lengi sem síðasta blogg! (sem var frá 14 mars....)
En svona í stuttu máli... síðan í mars er ég náttúrlega búin að afkasta heilum helling í skólanum (sem er svo sem ekkert sérstaklega frásögu færandi)...
pabbi átti afmæli 13 apríl en hann varð 60 ára þetta árið!!! og ég skellti mér í afmælið hans
það var þrælskemmtilegt og rosalega gott að vera aðeins í faðmi fjölskyldunnar og hitta vinkonurnar! Verst hvað ég hafði ótrúlega lítinn tíma, náði þar af leiðandi ekki að hitta Astrogengið né háskólapíurnar!!
Önnur afmælisbörn aprílmánaðar sem fá hamingjuóskir frá mér eru Brynja, Eva Ósk, Hildur, Óli Páll og að sjálfsögðu eiginmaður minn hann Eyjólfur sem varð hvorki meira né minna en 30 ára! Eyjólfur hélt upp á afmælið með því að bjóða gengi úr vinnunni í mat og eldaði hvorki meira né minna en Wellington nautasteik handa 17 manns og bakaðar kartöflur, salat og sósu með!!! Geri aðrir betur!!!
Eftir afmælið tók við meiri skóli hér í Noregi... EN... svo fórum við íslendingarnir á NAFO ráðstefnu á Storefjell. Þetta var semsagt samansafn af áhugamönnum um atferlisgreiningu sem hittust og sátu á fyrirlestrum hjá hvorum öðrum, djömmuðu saman, borðuðu (mikið) af góðum mat og djömmuðu meira (frá fimmtudegi fram til sunnudags)... hvorki meira né minna en 900 manns sem mættu (mig minnar að það séu um 30 skráðir félagar í SATÍS (áhugamenn um atferlisgreiningu á Íslandi)!! Þetta var alveg þrælskemmtilegt!!
Svo er náttúrulega ABAI ráðstefna í Osló í ágúst sem ég ætla að fara á... en það eru seinni tíma fréttir hehe
Eftir NAFO fór ég á prufuvakt í nýrri vinnu... hver vakt er tveir og hálfur sólarhringur svo þetta var alveg ótrúlega frábrugðið öllu vaktaskipulagi sem ég hef prófað! í staðin eru bara 4 vaktir í mánuði fyrir 100% vinnu
Vinnan var ágæt... þetta er ekkert staðurinn þar sem ég mun sigra heiminn, en ágætis stoppistöð svona með náminu! Þetta er semsagt heimili fyrir þrjá einstaklinga sem eru einhverfir...
Svo er bara meiri skóli! í síðustu viku komu tveir hundar í skólann hjá okkur og við fengum að spreyta okkur á svona "clicker training." Það var þrælskemmtilegt! Aldrei að vita nem ég hendi inn einhverjum myndum af því við tækifæri.... Í næstu viku erum við svo að fara að skoða "rottu-lab".... ég ætla sko að taka myndavélina mín með og taka myndir af því líka... set kannski allar myndirnar inn á sama tíma hehe
Svo var ég að vinna á sjúkrahúsinu þessa helgi... það hefur því heldur betur ekki verið tækifæri til að láta sér neitt leiðast hér á bæ!!
Jæja, ætla ekki að hafa þetta neitt of langt... enda nennir enginn að lesa langa pistla hehe
Bestu kveðjur til ykkar allra
Hanna Steinunn
14 athugasemdir